Kæra Ásta
Héðan er allt gott að frétta ástæðan fyrir að engar fréttir af fjölskyldunni hafa komið hérna inn er vegna próftarnar ritstjóra en sú törn er búinn í bili.
Friðrika dafnar og dafnar og er alltaf að koma okkur á óvart með tilsvörum því maður kemur ekki að tómum kofanum þar á bæ. Mig langar að deila með þér samtali sem að ég átti við hana í gær til að skýra hvað ég meina hér að framann.
Við sátum við matarborðið að borða mangochutney já það sama og þú gerir en með nautakjöti. Jakob er eitthvað að vesenast og mamma hans var að sinna honum.
Siggi: Friðrika hvað langar þig að verða þegar að þú ert orðin stór
Friðrika: söngkona
S: og eitthvað annað sem að þig langar að verða
F: ummmm hárgreiðslukona
S: og eitthvað annað?
F: vinna á mcdonalds
S: eitthvað annað?
F: díses maður hvað á ég eiginlega að vera að vinna í mörgum vinnum maður.
Ég vissi ekki hvað var meira að bæta við en bara þú ákveður þig þegar að þú ert orðin stór.
Jakob dafnar og dafnar nú er hann að fara að skipta um leikskóla þar sem að það var verið að fara að taka nýtt hús í notkun sem að er við hliðina á gamla leikskólanum hans. Hann og nokkrir aðrir munu flytjast yfir á nýja leikskólann en þó mun vera sami leikvöllur og sömu gaurarnir og kannski nokkrir til.
Jakob er kominn með algjöran lubba og er hann staðráðinn í að safna meira hári nokkrar tilraunir hafa verið gerðar til að fá aðeins að snyrta toppinn en það kemur ekki til mála.
Gunnhildur er bara ánægð í vinnunni hún er kannski full metnaðargjörn og þarf þ.a.l að aðlagast dönskum vinnumarkaði. En annars gengur henni bara vel, en ekki hvað þar sem að allt sem að hún gerir það gerir hún vel.
Af mér er mest lítið að frétta nema það að það er ein prófatörn búin og tvær eftir. Fyrsta törnin gekk vel og nú er bara að halda áfram að hanna,teikna,gera skýrslur og reikna burðarþol jibbí.
6 ummæli:
Kæri tengdasonur þú bregst mér aldrei takk takk og aftur takk, þau eru bara yndisleg snuff snuff
mér heyrist að nú verði nokkuð regluleg uppfærsla þar sem þú ert í góðum gír í augnablikinu.
kv
tengdó
já sammála Ástu minni ...maður er svo háður nýjum fréttum af fólki sem býr langt í burtu og líka að sjá nýjar myndir af fallegu systkinunum.
skemmtileg færsla og Friðrika mín góð að svara ha ha ha
knús Tinna frænka
Ohhh en hvað þau eru nú sæt :)
Og gaman að fá fréttir af ykkur, burtséð frá krepputali og neikvæðni sem er í öðru hvoru bloggi :) Ekkert illa meint sko, bara svona innlegg.
Annars er allt gott að frétta af okkur, í raun allt við það sama þannig lagað.
Bið að heilsa kæru frúnni og knús á línuna til ykkar allra.
kv,
Ragga og familí
Mikið er ég ánægð með hana Friðriku og tilsvörin hennar. Þið þurfið að vera dugleg að skrá þessi skemmtilegustu. Yndislegar myndir af yndislegum börnum. Knús á alla línuna.
Linda Rós M frænka
Hæ sæta fjölskylda !
Það er alltaf jafn gaman að lesa bloggið ykkar, og ekki verra þegar maður fær myndir af Bakkanum og börnunum líka. Söknum ykkar alveg helling og lífsins í Köben. snökt snökt..... Langar svooooo að fara að koma í heimsókn. Skilið kveðju til allra.
Stórt knús til ykkar allra
fyrrverandi frú 47
hmm veit ekki af hverju þetta kom eins og hr. Runólfur hafi skrifað kveðjuna að ofan. En what ever... við erum hvort eð er eitt ; )
Skrifa ummæli