Var í samkomu í gær með mörgum viðskiptafræðingum einum hagfræðingi og nokkrum stærðfræði menntuðum mönnum. Ekki passaði ég vel inní þennan hóp þar sem að þið getið giskað á hvað var rætt og á hvaða leveli. En það sem að mér þótti áhugavert er hvað þessir drengir gátu rakið mörg viðskiptaleg tengsl og eignafléttur og samkvæmt þeim þá er ekkert bara Glitnir í vondum málum því þetta á eftir að hafa dómínó áhrif á mörg stór fyrirtæki. Og endaði kvöldið á að veðja um að ákveðinn banki færi á hausinn á mánudaginn eða um miðja næstu viku. Rökin fyrir því voru því miður sterk ef að þau eru öll rétt.
Vá nenni ekki að spá í þessu en maður verður einhvernvegin samt að gera það þó svo að maður sé ekki með einhverjar fjárhæðir inn í bönkunum, þetta hefur bara áhrif á svo marga sem að manni þykir vænt um.
laugardagur, október 04, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli