föstudagur, október 03, 2008

Föstudags pirr HÖF sas

Heyrði núna áðan að verið væri að spá í að taka krónuna af markaði. Hef svo sem ekkert fyrir mér í því nema orð. En hvað mun þá gerast, verður gjaldeyrir skammtaður og ekki hægt að kaupa erlendar matvörur í búðum okkar verð að viðurkenna að ég þekki ekki kreppu og er ekki það vel menntaður að geta spáð fyrir um hvað mun gerast.
Geir Haarde ætti svolítið að hugsa um orðatiltækið „betra er að þegja og vera álitinn heimskur en að opna munninn og taka allan vafa af“. Finnst hann svona bara búinn að vera segja eitthvað síðustu vikur og mánuði.
Önnur pæling ýmindum okkur að Bank of america er að leita að bankastjóra eða hvaða banki sem er fyrir utan landsteinana og Davíð Oddsson sendir umsókn um stöðuna. Mundi hann fá stöðuna .ar sem að hann er ekki með næga menntun til að stjórna banka og reynslan er ekki alveg á bankastjóra leveli þó svo að hans reynsla sé gríðarleg. Og ekki mundi ég fyrir mitt litla líf fara að draga úr henni. Svarið er NEI hann mundi ekki einu sinni komast í 50 manna úrtakið. En við skulum leyfa honum að stýra Seðlabankanaum maðurinn kann ekki einu sinni á tölvur samkvæmt áreiðanlegum heimildum. Satt best að segja þá hefur þessi seðlabankastjóra staða verið svona punt staða fyrir menn ekkert annað. Ég legg til að Bjarni Ármannsson verði fenginn inn sem ráðgjafi maður sem að veit hvað er í gangi og hefur gott orðspor á sér.

Jæja þá er pirringurinn búinn gott að klára hann svo að maður geti verið laus við hann í dag.

Yfir og út
Siggi pirrandri

Engin ummæli: