miðvikudagur, ágúst 27, 2008

Update og video

Jæja þetta gengur ekki lengur það er búið að skamma okkur svo mikið fyrir að uppfæra þetta blogg ekki nægilega oft. Nú verður gerð bót á því en fyrst stiklum við á stóru hvað gerðist í sumar


• Siggi fór heim 17 eftir prófin þar sem að hann fékk 10 í lokaverkefni 4 annar
• Friðrika útskrifast úr 0 bekk sem að er samsvarandi til 1.bekks á ísl
• Gunnhildur tók á móti öllum úr fjölskyldu sinni í sumar
• Gunnhildur var með leikskóla hér í sólahring (var að passa mikið af börnum)
• Jakob kom til íslands og var í viku Siggi vissi ekki að hann væri að koma heldur mætti töffarinn bara
• Friðrika kom til Íslands og var í rúmar tvær vikur og aftur þá vissi Siggi ekki að hún væri að koma
• Friðrika kom aftur til Köben þann 19 ágúst og kom Siggi með alveg óvænt. Gunnhildur bjóst ekki við honum fyrr en 25 ágúst
•Friðrika og Siggi komust að því hvaða flugfélag er með flesta óánægða viðskiptavini á Íslandi
• Jakob átti að fara í aðgerð á eyra á mánudaginn en henni var frestað þangað til 22 september
• Gunnhildur byrjaði að vinna í CBS á þriðjudaginn
• Siggi byrjaði í skólanum líka á þriðjudaginn
• Friðrika er byrjuð í fyrsta bekk og líkar vel
• Jakob heldur áfram í leikskólanum og finnst svo skemmtilegt að hann biður um að fá að vera lengur þegar að maður nær í hann.


Set inn dansatriði sem að frænkurnar Friðrika og Ásta sýndu hér í sumar og einnig pönk breik dansinn hans Jakobs

Engin ummæli: