fimmtudagur, ágúst 07, 2008

okay

Jæjan þá er Friðrika að verða búin að vera í viku hjá mér og erum við búin að vera í matarboðum uppá næstum hvert einasta kvöld og náturulega mikið í sundi eins og góðir útlendingar að uppgötva heita vatnið.
Þegar að daman fer að sofa á kvöldinn þá vill hún hafa pabba sinn með og oftar en ekki förum við að ræða öll heimsins mál . En þessar umræður hafa oft í för með sér að pabbinn er að sofna á sama tíma og dótttirinn. Sem að er bara afbragð að sofna snemma svona við og við en nú er þetta orðið þannig að ég þarf að pína mig til að vaka lengur en til níu hálf tíu. Maður er fyrir vikið úthvíldur og eiginlega of hvíldur. En það er alveg frábært að hafa hana hérna og hún verður bara frekar lengi eða til 19 ágúst en þá fer hún út með Sunnu. Sem að er stelpa sem að Nanna hans Mikka þekkir. En svo mun ég koma 23vonandi ágúst. Fer svona eftir veðrum og vindum.

En að daglegu tali þá er rosa mikið að gera í vinnuni og fæ ég hrikalega mikið af skemmtilegum verkefnum og oft á tíðum krefjandi. Svo er ég að lenda í verkefnum sem þar sem aðferðafræðin sem að við erum búin að vera að læra í vetur er notuð.
Fólk er ekki oft á tíðum með á hreinu hvað ég er að læra en ég er að læra Byggingafræði og ætla ég að skrifa fyrir ykkur hvað byggingafræði er.




STARFSVETTVANGUR BYGGINGAFRÆÐINGA

Byggingafræðingur er í dag, trúlaga best menntaði starfsmaður sem hægt er að fá á sviði byggingar og hönnunargeirans. Námsgrunnur byggingafræðingsins er í flestum tilfellum sveinsbréf í einhverri byggingariðngreininni og þar af leiðandi að lágmarki 4. ára starfsreynsla á byggingarstað, ásamt 3,5 ára háskólanámi í Danmörku, þar sem kennt er 11 mánuði á ári. Þar er byggt ofaná þekkingu iðnaðarmannsins með faglegri grundvallarþekkingu sem lítur að hönnun á húsbyggingum og annarri mannviðjagerð. Meðal námsgreina er hönnun, burðarþol, lagnir, efnisfræði, stjórnun, áætlanagerð, tilboðsgerð, fjármálastjórnun, lögfræði, öryggiseftirlit og margt fleira.
Sagan: Upphaflega er nám í Byggingafræði sett á fót um árið 1855 í Danmörku, að kröfu þarlends atvinnumarkaðar. Brúa þurfti hið mikla gap sem varð til þess að hönnuðir og iðnaðarmenn misskildu hver annan, og bera fór á misstökum og hreinlega vitleysum í byggingum af þessari ástæðu. Byggingafræðingurinn átti að brúa bilið sem “túlkur”. Hann átti að vera iðnmenntaður til að skilja iðnaðarmennina og átti síðan að hafa staðgóða þekkingu á hönnun, tæknilegum útfærslum, skipulagningu og öðru því sem hönnuðurinn hafði. Í gegnum árin hefur starfsgreinin þróast og tekið breytingum í samræmi við kröfur byggingariðnaðarins og spannar námið í dag, breiðara svið en flestra annarra langskólagenginna tæknimanna og þekkingin nýtist til fjölbreyttari starfa en áður.
Innan byggingageirans eru byggingafræðingar að störfum í öllum hönnunar, ráðgjafar- og stjórnunarstöðum. Valin aðferð fyrir hverja framkvæmd er jafn breytileg og fjöldinn segir til um. Eftirfarandi dæmi sýna af hverju byggingafræðingurinn er þinn besti ráðgjafi.

HÖNNUÐURINN:

Byggingafræðingurinn gegnir margvíslegu hlutverki í hönnunarferli bygginga. Við upphaf hönnunar útbýr byggingafræðingurinn ramma um óskir verkkaupa, þessi rammi verður síðan sá grunnur sem stuðst er við í allri tillögugerð. Á sérsviði byggingafræðinga er ásamt tillögugerðinni, gerð bygginganefndarteikninga og vinnuteikninga. Stór þáttur í hönnunarferli byggingafræðings er könnun á byggingarefnum og efnisval sem tekur mið af hvar byggt er hverju sinni. Í tengslum við áður unnin hönnunargögn útbýr byggingafræðingurinn síðan útboðsgögn, til heildarútboðs á verkinu. Að afloknu útboði vinnur hann úr innkomnum tilboðum og gerir tillögu að verktaka.

VERKTAKAR – FYRIRTÆKI:

Hjá verktakafyrirtækjum sér byggingafræðingurinn meðal annarra um undirbúning og stjórn á byggingaframkvæmdum, hann er ábyrgur fyrir eftirliti og gerir kostnaðar- og tímaáætlanir. Þar hefur byggingafræðingurinn einnig hlutverk sem byggingastjóri og verkefnisstjóri. Hann sér um að gera tilboð í þau verkefni sem í gangi eru hjá verktakanum hverju sinni. Einnig sér hann um yfirstjórn byggingaverka og sér um að samræma vinnu aðalverktaka og undirverktaka.

HÚSAKAUPANDI:

Þegar húsnæði er keypt eða byggt, er oftar en ekki að viðkomandi aðili leggur aleigu sína undir. Það tilheyrir liðinni tíð að byrja á öfugum enda, hafðu því samband við byggingafræðing áður þú stofnar er til skuldbindinga með tilboðsgerð og síðan kaupsamningi. Tefldu ekki í tvísýnu, til þess er of mikið í húfi. Leitaðu því sérfræði þekkingar byggingafræðings strax í upphafi.

OPINBERIR AÐILAR:

Hjá bæjar og sveitarfélögum eru byggingarmálefni í höndum byggingarnefnda. Til að fara með framkvæmdavald byggingarmála skipar sveitastjórn byggingafulltrúa og er hann í mörgum tilfellum byggingafræðingur. Hann fer m.a. yfir innsend gögn ,,byggingarnefndarteikningar” og athugar hvort gögnin uppfylli lög og reglugerðir um skipulags- og byggingarmál. Ef gögnin uppfylla allar kröfur þess opinbera, gefur hann út byggingarleyfi, eftir formlegt samþykki í byggingarnefnd og sveitarstjórn.

EIGNARHALDSFÉLÖG :

Eignarhaldsfélög og önnur þessháttar fyrirtæki eiga oft fjölda fasteigna sem þarf að hugsa um. Byggingafræðingurinn vinnur ástandsskýrslu slíkra eigna og gerir áætlun um hvernig viðkomandi fasteign heldur best verðmæti sínu. Hér er annars vegar átt við nauðsynlegt viðhald og hinsvegar hugsanlegar breytingar á húsnæðinu til að auka verðmæti, og auðvelda útleigu eða sölu. Byggingafræðingurinn metur verðmæti eignarinnar, reiknar út kostnað á viðhaldi, viðgerðum eða breytingum, vinnur útboðsgögn og gerir samninga um hagstæðustu lausnina fyrir félagið.

BYGGINGARRÁÐGJÖF:

Á hönnunar og byggingarferlinum aðstoðar byggingafræðingurinn húsbyggjandann, með ráðgjöf í ákvarðanatöku og áætlanagerð er varða byggingarframkvæmdir. Byggingafræðingurinn tekur niður og skilgreinir óskir verkkaupa jafnframt því að halda utan um heildar verkið og sjá til þess að kostnaðar- og tímarammi sé í samræmi við það sem áætlunin segir til um.

SKRÁNING FJÖLEIGNAHÚSA:

Frá 1. janúar 2001 er það skilyrði fyrir þinglýsingu á eignaryfirfærslu í fjöleignarhúsum, að eignaskiptayfirlýsing liggi fyrir og að eignayfirfærslan sé í samræmi við hana. Byggingafræðingur með leyfisbréf frá ráðherra gerir eignaskiptayfirlýsingu sem ákvarðar eignarhlutdeild hverrar séreignar í sameign, hita, lóð ofl. Þetta er gert með svonefndum hlutfallstölum og eru þær mjög mikilvægar varðandi réttindi og skyldur eigenda. Með því að velja byggingafræðing sem hefur mikla þekkingu á byggingum og reglum þar að lútandi, geta menn verið fullvissir um að fá réttan eignaskiptasamning. Þetta er mjög mikilvægt þar sem samningurinn ákvarðar eignarhluta eigenda í séreign og sameign ásamt kostnaðarhluta í sameiginlegum rafmagns, hita, viðhalds og framkvæmdakostnaði fjöleignarhússins.

FRAMLEIÐSLA& SALA:
Í fyrirtækjum sem framleiða og selja byggingareiningar, er byggingafræðingurinn mjög mikilvægur aðili í heildar starfsmanna samsetningu fyrirtækisins. Hér sér byggingafræðingurinn um hönnun / útfærslu eininga í samráði við verkkaupa, ásamt öllu gæða og framleiðslueftirlit innan verksmiðjunnar, þar sem hann ábyrgist að varan uppfylli ákveðnar gæðakröfur. Einnig sér byggingafræðingurinn um gerð útboðsgagna vegna hráefniskaupa og gerð tilboða í sölu fullbúinna eininga. Öll sérfræðilega ráðgjöf fyrir verkkaupa er varðar möguleika, meðferð og uppsetningu eininganna er einnig í hans höndum.

GÆÐAEFTIRLIT:

Margir verkkaupar gera kröfur um að virkt gæðakerfi sé hjá þeirra verktökum. Markmiðið er að byggingafræðingurinn sem gæðastjóri stýri því að fyrirtækið hafi í notkun gegnheilt kerfi til að skipuleggja, stjórna og afhenda rétt gæði vöru og eða þjónustu. Tilgangurinn er fyrst og fremst að koma í veg fyrir ósamræmi við skipulagða og hannaða framkvæmd, en einnig að uppgötva mistök og koma í veg fyrir endurtekningu. Byggingafræðingurinn / gæðastjórnandinn þarf að upplýsa hvern einstakan starfsmann um framleiðsluna því sá sem vinnur verkið verður að skilja að sú vara sem hann afhendir verður að uppfylla tilskilin gæði.


tekið af bfi.is

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já nei takk, ég nenni ekkert að lesa alla þessa ritgerð um byggingarfræði. En gaman fyrir þig að hafa fengið Friðriku svona óvænt í heimsókn. Þið gætuð nú kannsi labbað hingað yfir einhverntíman svo við fáum nú að hitta stelpuskottið einu sinni áður en hún fermist;) Um að gera að drífa sig bara á meðan við búum nú ennþá í götunni, en það breitist um næstu helgi.
Kv. Heiðrún

SGFJ sagði...

Þá skaltu ekki spyja mig að ári "hvað ertu aftur að læra þarna úti eg gleymi því alltaf"