Ég átti samtal við dóttur mína sem að útskýrir smá að hún sér allt svart og hvítt eins og Gunnhildur er alltaf að hamra á við mig. Þar sem að ég er stundum að djóka í Friðriku og hún tekur því stundum bókstaflega, reyndar er hún að átta sig á þessu og djókar stundum bara á móti.
Friðrika var komin upppí rúm og kallar fram að hún sé svöng ég segi henni að það hafi verið kvöldmatur áðan og að hún hefði átt að borða þá. Hún var ekki á þeim buxunum að gefast upp þannig að ég setti lasagna á disk fyrir hana og hún borðaði á meðan að hún fylgdist með mér setja í uppþvottavélina. Þá segir hún ( og hefst nú samtalið)
F: pabbi eru tómatar í þessu?
S: Já þetta er það sama og þú varst að borða áðan og þú borðaðir allan matinn þinn
F: óó!
F: En pabbi er laukur í þessu?
S: já
F: mér finnst laukur vondur
S: Friðrika þú borðaðir þetta áðan og fannst þetta gott. Hugsaðu um öll fátæku börnin sem að fá ekkert að borða(hefur verið smá umræða um fátæku börnin undanfarið eða eftir að hún gaf dót í Rauða krossinn)
F: já en afhverju kaupa þau sér bara ekki mat
S: það eru engar búðir þarna og þau eiga bara engan pening.
F: okay
S: veistu að það eru ekki allir ríkir (átti við að það eiga ekki allir fyrir mat)
F: hvað er að vera ríkur er það svona að eiga mikla peninga
S: já
F: og hvernig verður maður ríkur?
S: maður vinnur mikið
F: okay þannig að þú verður ríkur í sumar því að þú ert að fara að vinna á íslandi?
S: já og nei, ég verð ekkert ríkur en ég fæ einhvern pening fyrir að vinna
F: okay fær maður pening í þinni vinnu ef að maður vinnur?
S: já
F: hvern spyr maður ef að maður vill vera með?
S: að vinna?
F: já mig langar líka í pening!
mánudagur, apríl 07, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
8 ummæli:
Ég elska þessa stelpu hún er engum lík og bara svo skemmtileg, bráðum fer ég að telja dagana þangað til að ég get knúsað þau bæði, amma hefði nú vijað hafa prinsinn í fanginu þar sem hann var alveg að sofna frábært skot, ÞAÐ ER GOTT VEÐUR 'A 'ISLANDI 'I DAG bara svo að þið vitið það
knus og kaoosar til allra
amma
hehehe, hún á sér bjarta framtíd thessi:) magga and the gang århus
Hahahaha... algjör perla! Annars hefði ég ekkert á móti því heldur að "vera með"
...... en spurningin er fyrir menn eins og mig.... Getur maður fengið pening, án þess að "vera með"?
Hér er smá uppfærsla ÞAÐ ER SNJOR 'I DAG, grrr.
kv
ams
Já það kallast þingmaður
Góð! Okkur langar líka í pening!
Takk fyrir síðast, þetta var skemmtilegt kvöld.
Hafið það gott. Heyrumst.
Linda og Peter +1
hahahahhahahaha.... ÉG Á ÞING..
Skrifa ummæli