Það er ekki að það sé ekkert að frétta heldur erum við bara svo hrikalega löt að skrifa hérna inn en förum yfir þetta á smá hraðferð.
1. Vika í sumarbústað með frábæru fólki héðan af Sólbakkanum. Þar var hlegið mikið og góður matur borðaður. Þetta var sumarbústaðarverð par exxelans.
2. Komið heim og tekið á móti góðum gestum þar sem að Ásta Lín, Arngrímur og Magnús Geir komu í heimsókn. Þegar að hún Ásta var að undirbúa utan ferð þá hringdi hún í Gunnhildi og spurði hvort að okkur vantaði eitthvað sem að við bara þvertókum fyrir þar sem að okkur vantar svo sem ekkert eða það héldum við. En Ásta trúði okkur ekki og ákvað bara að koma með tvo troðfulla Hagkaupspoka af sælgæti, Íslenska osta, Cocco Puffs (family size), Cheerios og enn meira sælgæti. Hvað er hægt að segja annað en takk fallega fjölskylda.
3. Páskaegg og fugl borðaður um páskana og bara kósýheit alla páskana.
4. Skólinn byrjaður á fullu hjá Friðriku og er hún að taka hann bara með trompi, Jakob er ánægður með leikskólann sinn nema hvað að honum finnst að það ættu að vera dótadagar alla daga.
5. Gunnhildur er kominn í upplestrarfrí og eins og orðið gefur til kynna þá er hún að læra.
6. Siggi er á fullu í skólanum eða nei hann er bara í skólanum og er að fara í próf á fimmtudaginn sem að á bara vonandi bara eftir að ganga vel.
7. Eyddum góðu kvöldi nú á föstudaginn með enn betra fólki og horfðum á Martin vinna X-factor.
8. Í gær var svo deginum eytt hjá Hjölla og Hildi og borðað Sushi og spilaður póker.
9. Dagurinn í dag er bara búinn að fara í rólegheit
3 ummæli:
Svona á þetta að vera, uppfæra gamla konu á íslandi almennilega.allt gott að heiman allir dafna vel (að undirritaðri meðtalinni)Veðrið þokkalegt en eg er orðin ansi lageygð eftir smá hita. læt ykkur vita fljótlega með sumarið, það bjargast eins og flest það sem ég tek mér fyrir hendur, ég kem "secret" knús og kossar mams
p.s. er búin að redda fríinu, ég sagði ykkur það
kv
mamma
Martin frændi???
Skrifa ummæli