fimmtudagur, apríl 12, 2007

Smá kvart og kvein

Ég er að verða geðveikur á upplýsinga leysi innan veggja skólans míns. Þannig er nú til að byrja með ekki hægt að prenta út stundartöflu því að það eru alltaf einhverjar breytingar og enginn dagur eins. Þessvegna er bara betra að skoða uppfærða stundartöflu á netinu. Svo núna mætti ég í skólan í morgunn og vitir menn það er kominn ný próftafla og samkvæmt henni á ég að vera í síðasta ptófinu mínu 4.júní. Sem ap er svolitið á skjön við það sem ég og allur bekkurinn hélt því við erum búinn að standa í þeirri meiningu að við eigum að verjaverkefnið okkar þann 23.júní. En ef að við erum að klára 4.júní þá erum við að verja í lok mai. Og vá hvað þarf þá að gerast mikið á stuttum tíma því að þarna er búið að taka af okkur heilan mánuð sem að er frekar mikið í svona ferli sem að verkefnið okkar er. Og nú eru verkefnin bara að detta inn eins og gluggapóstur. Þetta eru allt frekar viðamikil verkefni sem að þurfa að hanga uppi með lokaverkefninu. Ekki það að ég sé að kvarta ég er í skóla og þar á maður að læra en það er bara þetta upplýsingar leysi. Er reyndar búinn að senda mail á Tein vonandi bara að hann svari mér sem fyrst. Svo helst þetta nátturulega allt saman í hendur hvenar að maður getur bókað miðan heim. Ég er að fá magasár af stressi en jæja þýðir lítið að kvarta hér nú er ég farinn að hrófla í stærðfræðinni. Sem að hann Eiríkur ætla að taka mig í sértíma í um helgina guð sé lof fyrir góða vini.

1 ummæli:

Birna sagði...

Æðislega var gaman að heyra í þér í gær Siggi minn:) Er búin að vera að dunda mér að lesa hérna hvað þið eruð búin að vera að bralla í útlandinu... og skoða myndir. Krakkarnir eru alveg bjútífúl...enda ekki langt að sækja það;) og vá hvað þau eru orðin stór!!
Gangi þér rosalega vel í skólanum og knúsaðu familíuna frá okkur.
Knus og klem xxx, Birna, Sibbi og Þórdís Katla