mánudagur, apríl 30, 2007
Hlutabréf kaupa kaupa kaupa
Jæja Þá er komið að því að kaupa hlutabréf því ef að þú átt ekki bréf í H&M þá mundi ég mæla með að kaupa núna. Því ég hef góðar heimildir fyrir því að þau munu hækka næstu vikur. Og þau munu hækka allavega um 30 punkta. Sem að telst mjög mikið. Þið spyrjið afhverju ætti ég að setja peningana mína í einhverja tískuverslun. Sú spurning á alveg rétt á sér og er einnig auðsvarað. Linda Rós er að koma til Dk með vinkonu sína hana Berglindi og eiga þær til samans fullt af börnum. Sem jú þurfa á H&M að halda. Einnig gæti ég mælt með því að kaupa í Carlsberg vegna þerssara sömu heimsóknar. Ef þið kaupið ekki bréf núna þá eigi þið bara eftir að naga ykkur í handabakið. Og ég og Björgúlfur munum bara skála í Rússneskum bjór. Múhaaaaaaa
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
allavega er planið að shop till you drop þannig þau gæti alveg hækkað um nokkur prósentustig
okkur langar að senda Jakobi kveðju í tilefni dagsins. Til
hamingju með afmælið Jakob minn vonandi verður gaman í dag.
Afmæliskveðja frá Hrafnhildi Ásu og gamla settinu.
Til hamingju með afmælið Jakob!
kveðja, María og co.
Til hamingju með strákinn !
kveðja
Hanna og Daði
Skrifa ummæli