mánudagur, apríl 16, 2007

Beygðu ný dönsk ofan á brauð

Vá hvað er búið að vera gott veður það er búið að vera það gott veður að mér tókst að brenna smá. Ég sem að brenn aldrei því ég er svo dökkur á hörund trúiði því.

Allavega þá voru 22 graður á mælunum sem að ég sá á leiðinni heim rétt eftir hádegi. Þetta er svo ljúft en nú á að kippa þessu öllu aftur til baka og minna okkur á að það er april. Því það á að vera rigning rigning rigning og kannski smá slydda ef að við erum heppin. Allt þetta á einni viku.
Nú er það komið á hreint við komum 6.jun heim það verður freker ljúft að hitta alla því við förum ekki fyrr en 23.agust . Þá held ég líka að maður verði kominn með leið á íslandi ekki það að ísland sé ekki æðislegt það er bara alltaf erfitt að eiga heima í ferðatösku. Sofa ekki í sínu rúmi og kúka alsber með hurðini opna syngjandi Frelsið er yndislegt eftir Ný danska. Látið ekki svona það gera þetta allir samkvæmt könnun Gallup.

Einnig er ég að hanna lista yfir það hvað mamma og tengdó eiga að elda fyrir okkur. Reyndar kemur tengdó hingað í mai og vitið til ég verð búinn að koma henni fyrir framan eldavélina á no time. Enda kannski ekki erfitt því hún fær svo mikla gleði útúr því að elda fyrir okkur. Ég meina meira að segja Baldvin eldaði síðast þegar að hann var hérna reyndar eldaði hann bara snakk en það var gott snakk. Þetta eru svo fjölhæf hjón.

Nú er einnig komið á hreint að hann Hjölli vinur minn sem að vann með mér hjá Gamlhus elti mig svo yfir til Aðalvíkur og ég elti hann svo yfir til Þúsundþjala og nú er hann að elta mig til Dk. Hann er meira að segja að fara í sama skóla og ég, ekki á sama stað en þetta er samt hugulsamt af honum að koma hingað til okkar.

En nú nálgast prófin og vá hvað það verður mikið að gera núna í mai ég held bara að ég verði ekkert heima en það vonandi skilar sér í góðum einkunum. Reyndar er stærðfræðin orðinn þannig að ég bara vonast til að ég nái. En ég á eitt tromp uppí erminni núna því hann Eiríkur Steinn kom hérna yfir í gær. Og hann er svona rosalega góður kennari ég gjörsamlega sá bara ljósið. Þannig að ég held að maður muni reyna að biðja hann að koma hérna yfir annað slagið fram að stærðfræði prófinu. Það þarf ekkert að taka það fram að Eiríkur er alveg endalust klár í stærðfræði er það nokkuð. Ég meina hann er með mastersgráðu í verkfræði. Annars bara takk Eiríkur þetta var alveg hrikalega gott kvöld hérna í gær.


Jæja best að fara að henda fyrirlestrinum sem að ég á að flytja á morgun um steingólf inn í Powerpoint. Þangað til næst bless bless.

Commenta koma svo ég veit að þú getur það.

Engin ummæli: