föstudagur, mars 23, 2007

Kjarnakljúfur

Fyrirgefðu Baldvin Hrafn ég veit að ég lofaði að blogga ekki fyrr en eftir mánudaginn en ég stenst ekki mátið. Það eru nokkur mál á dagskrá sem að ég vill koma á framfæri og þau koma bara svona í belg og biðu.

1.Veit ekki hvort að ég eigi að byrja á Damien eða Hrafnhildi Ásu og foreldrum hennar en ég held samt að ég geri það nú bara samt. Fyrir ykkur sem að vitið ekki hver Hrafnhildur Ása er þá er hún dóttir Óla Ara og Evu Daggar. Og er hún hreint út sagt ekkert smá mikið rasgat. Veit að alvöru karlmenn mega ekki nota þetta orð en ég geri það samt. Hún er algjört krútt eins og pabbi sinn. Reyndar er hún líka frekar lík Evu þó svo að hún sé mjög blönduð. En ég ætla að segja það aftur hún er rassgat. Það var hrikalega gamann að fá Óla,Evu,Hrafnhildi og ófædan Sigurð Andra í heimsókn. Það vær rætt allt milli himins og jarðar. Bara takk fyrir heimsóknina vonandi sjáumst við einhvertímann í London.

2.Damien Rice var ótrúlega skemmtilegur þrátt fyrir að hafa valið frekar róleg lög en hressleikinn kom annað slagið og þegar að hann tók Canonball órafmagnað. Vá hvað það var flott en því miður voru einhverjum fíflum sem að fannst fyndið að USSSSSSSA mikið en það féll í grýtan jarðveg hjá mér. Einnig þessar íslensku dónastelpur sem að stóðu fyrir aftan mig og töluðu allan tíman meðan rólegu lögun voru flutt. Og það er ekki eins og að þær hafi verið að tala um eitthvað merkilegt heldur voru þær að tala um veðrið á íslandi. Það er nú bara vísbending að þær eru búnar að hanga of mikið saman. Nei án gríns maður fer á tónleika til að hlusta og á kafihús til að tala. SKILÐ STELPUR.

3. Íslandshreyfing Ómars Ragnarssonar góð hugmynd en er ekki alveg að gera sig.

4. Bell X1 finnið hljómsveitina hvernig sem að þið farið að og hlustið þarna er góð sveit á ferðinni. Þeir hituðu upp fyrir Danien og voru bara góðir.

5. Einnig er ég smá fúll útí Damien að hann skuli ekki hafa hringt. En fyrir ykkur sem að ekki vitið þá vorum við Damien saman í Vatnaskógi og eftir það höfum við alltaf haldið sambandinu. En ég hef reyndar ekkert heyrt í honum í þrjár vikur. Kannski er hann bara fúll útí mig því ég hringdi ekki til hans þear að mamma hans átti afmæli eins og ég hef gert síðustu ár. Hún átti einmitt afmæli fyrir þrem vikum.

6. Jæja Baldvin Hrafn nú skrifa ég ekki meira í bili bið að heilsa heim til þín. Ég vill þakka Baldvini Hrafni fyrir að hafa commentað. Þú ert sko vinur minn

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

bara ad kvitta, ekkert spennó ad frétta hédan, belgurinn stækkar bara og stækkar.......bid ad heilsa famelíunni.

Nafnlaus sagði...

Bara að kvitta svo að ég fái að vera vinur þinn áfram. Annars hugsa ég að það sé allt í lagi fyrir þig að nota svona orðalag, held að þú sért ekkert að opinbera neitt nýtt fyrir þeim sem þekkja þig. Efast um að það hafi neinn staðið í þeirri trú að þú færir alvöru karlmaður.
Kv Heiðrún

SGFJ sagði...

Heiðrún þú ert meira karlmenni en ég og í rauninni ertu meira karlmenni en flestir þeit karlar sem að ég þekki. En ekki ains og að þetta séu einhverjar fréttir þú ert jú sveitastelpa.