Vekefnið í dag gekk bara svona rosalega vel við vorum að skila inn svokölluðu Outline Proposal. Og í því er hæst hægt að fá átta og haldið þið ekki bara að minn hópur hafi fengið 8 segi ég og skrifa hæsta einkunnþ Þetta var smá léttir því við héldum að okkur vantaði mikið uppá en nei við erum á réttri braut.
Var kominn heim rétt um 11 akkúrat tímanlega til að fara með Jakob til læknis. Hann datt nefnilega í gær eða nei nei hann stökk og lenti eitthvað illa og skreið bara um íbúðina og gat bara ekki stigið í löppina. Læknirinn vildi nú vera viss um að ekkert alvarlegt væri að og sendi hann í myndatöku og hann er sem betur fer ekki brotinn. En var samt svona frekar lítill og vildi ekki labba þannig að ég plantaði honum á þríhjól og spændi hann upp gangstígana. En vildi ekkert labba fyrr en að hann hitti Hrafn vin sinn þá lét hann sig hafa það að haltra. Þeir eru nefnilega alveg perlu vinir báðir svona grallarar og líka báðir ljóshærðir. Ekki að það hafai neitt að gera með það að þeir séu vinir. Þetta var svona meira skrifað fyrir tengdó.
En við vorum bara að koma inn og ég er ekki frá því að ég hafi fengið freknu á hnakkann. Veðrið er bara gott en ekki nógu gott til að dýralæknar fórni lærdóminum fyrir,Vigdís vildi frekar sitja uppá elleftu hæð og læra og held ég að Embla hafi verið að læra líka. Ef að það er einhver þarna úti að spá í að fara í dýralæknin spáið aðeins í það. Og jafnvel komið hingað út og skoðið Vigdísi og Emblu sjáið bækurnar því dýr er ekki bara dýr. Þetta eru miklu flóknari vísindi en það. Farið frekar í Geimvísindi eða Heilaskurðlækningar. Því þá geti þið allavega notið veðursins.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
TIL HAMINGJU MEÐ ÁTTUNA!!!!
Skrifa ummæli