miðvikudagur, janúar 31, 2007

NFL og Eyjar

Sit hér fyrir framan tölvuna að berjast við Autocad og hlusta á Damien. Hef grun um að mörg kvöld verði nákvæmlega svona í vetur. Nú þegar að maður er komin með Autocad heim þá er enginn afsökun fyrir að vera ekki að teikna á kvöldin og um helgar. En þetta verður aðal verkfærið mitt þegar að ég útskrifast því er eins gott að læra vel á þetta forrit.

Verkefnið okkar eru 28 tveggja hæða íbúðir sem að á að byggja í Århus það er kannski ekki erfitt að teikna þetta svona gróflega en það er nefnilega málið. Öll smáatriði eiga að vera til staðar s.s hvernig hitaveita á að vera í húsinu, hvar er skólpið staðsett, hvernig tengirðu húsin saman, hvaða klósett ætlarðu að nota og afhverju. Þetta er bara endalaust en engu að síður gaman. Fyrir þá sem að hafa áhuga.

Það var ekki gaman að vera eini íslendingurinn í bekknum í dag en satt best að segja þá var þetta góður leikur og betra kiðið vann. Svo einfalt er það nú er bara að vona ap Danir verði heimsmeistarar (sem að er ekki að fara að gerast). Ef að það mundi gerast þá yrði þvílík stemmning hérna að það væri bara gaman að upplifa hana. Það er eiginlega meiri áhugi fyrir superbowl sunday hjá strákunum í bekknum heldur en handboltanum. Sem að mér þykir einkennilegt því ég hef einhvernveginn ekki dottið inní þennan ameríska fótbolta. Strákarnir eru reyndar staðráðnir í að breyta því hjá mér. Ég sagði við þá að þeir fengju mig aldrei til að vaka alla sunnudagsnóttina ril að horfa á ruðning. Þeir halda að þeir séu með eitthvað tromp uppí erminni og sögðu bara "þú heldur það". Kannski verður Robin Wiliams hjá Rass að horfa þá er ég til í að koma annars ekki. En hver veit.


Allt að verða brjálað í Vestmannaeyjum yfir gjaldskrárhækun Herjólfs mér þykir hugmynd mín um að flytja Vestmanneyinga á varnarliðssvæðið altaf betri og betri.

Einnig er gaman að sjá að það eru upprennandi eðlisfræðingar í grunnskólum landsins. En það er nú óþarfi að vera að sprengja upp klóset er ekki hægt að gera eitthvað saklausara eins og að taka rafmagnið af skólanummeð einhverjum kúnstum. Eins og Davíð Bragi gerði hér forðum daga.

Þetta er reyndar fréttin sem að stendur uppúr þessa vikuna. Kannski að maður eigi hættu á að vera rukkaður um stefgjöld ef að maður hækkar smá í útvarpinu. Bara hallærislegt. Og vitir menn þetta gerðist í Vestmannaeyjum. Ég held að það sé óhætt að segja að það er allt að verða vitlaust þarna. Ætli Árni standi fyrir þessu.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

heyhey...
hlökkum til að hitta ykkur á morgun!!!

kv, Nanna, Mikki og Ásta Lind :)