Jæja þá er maður kominn í mánaðar frí trúði því varla að ég væri að fara í heilan mánuð í frí en nú er það orðið að veruleika. En rétt í þessu var ég að kanna skóla mailið mitt og haldiði bara ekki að það sé búið að senda verkefni fyrir aðra önn. Já svona smá hint um að maður ætti að byrja að skoða hitt og þetta. Verkefnið er raðhús í Evrópu. STÓRT verkefni en verður gaman að takast á við þetta og einnig erfitt held ég. Hópurinn minn er að splitta eða ekki allur hópurinn en Mads ætlar að fara að vinna með öðrum hópi. Við Rasmus erum alveg sáttir við ætlum að vera saman í hóp enda vinnum við alveg einstaklega vel saman. En nú verðum við að fá tvo í viðbót í hópinn því að þetta verða að vera fjögurra manna hópar eins og síðast. Nema hvað að við vorum bara þrír því að músliminn okkar hún Mona hætti. En við erum komnir með eina umsókn frá henni Heidi um að fá að koma í hópinn okkar. Og fórum við yfir hana (umsóknina) í fyrradag og höfum samþykt hana. Þannig að nú vantar okkur bara einn í viðbót. Líður svolítið eins og í Survivor mynda bandalag og allt það. En ég held að það verði gott að fá Heidi í hópin hún er svona með skipulagið á hreinu. Og einnig hef ég tekið eftir því að hún er dugleg að skrifa niður hvað á að gera fyrir alla tíma og hvenar eru deadline og svona. Þannig skipulag er gott við Rasmus erum búnir að tala mikið um það í vetur að við þyrfutm að vera skipulegri. En allt kom fyrir ekki við töluðum bara um það en gerðum ekki neitt. En einnig er hann Morten í sigtinu hjá okkur og það kemur bara í ljós þegar að við mætum í lok Janúar. Hver veit kannski kemur TWIN (aðalkennerinn) með eitthvað twist og velur sjálfur í hópana. Eða annars nei það væri of mikið Survivor.
Hvað er málið með Guðmund í byrginu hann er nátturulega að ég held að ljúga í opið geðið á þjóðinni. Ef að þú sást hann ekki í kastljósi á RUV þá horfðu á það hér áður en að þú heldur áfram. Hann er með svo mikið bull t.d hver kaupir sex sumarbústaðalóðir á 1600þúsund með vatni. Ég skal svara því ENGINN. Einnig segir hanna að han hafi verið að sjá Kompás í fyrstaskiptið hjá Sigmari áður en að hann hafi sest í stólinn. En síðar í þættinum segir hann ég hef bara séð það sen ég og fjölskyldan horfðum á. Geri ráð fyrir að hann sé að tla um Kompás. Einnig muni þið þegar að Clinton sagði I dit not have sex with this women (Monicu). Þá sögðu allir helstu sérfræðingar í USA að hann var alltaf að líta niður og til hliðar og að það væri merki um að hann væri að ljúg. Hvað gerir Guðmundur jú horfir mikið niður og til hliðar. Hann hefur gert margt gott fyrir marga fíklana en hey þú mátti ekki gera hvað sem er. Það verður gaman að sjá hvað kemur frá því há embætti Ríkisendureskoðand varðandi Byrgið. Og ef að allt fer í skít þá vona ég að hann Guðmundur Týr fái bara fjárveitinguna sem að Byrgið er að fá. Því þar er maður er að er að gera góða hluti og er alveg einstakur maður(þekki hann pínu).
Einnig hvað átti Guðmundur við þegar að hann sagði í Kompás. "börnin món vita að ég stunda ekki BDSM" Væri gaman að spyrja hann.
Nú ætlar PALLI PEDERSEN að fara að tka til.
E.S
Hildur systir hugur minn er hjá þér elska þig gríðalega ef að það er eitthvað sem að ég gett gert fyrir þig hringdu. Elska þig.
miðvikudagur, desember 20, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
hæ, hæ Siggi... enginn hérna megin... til hamingju með stórgóðar einkunnir! En ég er hrædd um að þú verðir að fara varlegar í að prédika svona Guðs orð og heilagan anda yfir skólafélögunum ... músliminn hefur hreinlega bara gefist upp á þessu. Já... svo er það þetta með hann Guðmund, ég er hrædd um að hann sé ekki með allt sitt á hreinu og Drottinn tekur til í ríki sínu þegar honum finnst nóg komið af daðri við Djöfulinn... ekki satt? En þá að ástæðu þessa comments áður en það verður lengra en bloggið þitt: Hvert á maður eiginlega að senda Vísitölufjölskyldunni jólakort?
Rektorparken 18 2 t.h 2450 köben Danmark
Rektorparken 18 2 t.h 2450 köben Danmark
Skrifa ummæli