fimmtudagur, nóvember 23, 2006

Hvað er að frétta

Veit að það hefur ekkert blogg komið hér inn allt of lengi og er ég með fullt pósthólf á gmailinu sem að sannar það.

En hér kemur það náðu þér í kaffibolla,te,áfengi,engiferkökur eða hvað það sem að þú færð þér þegar að þú ætlar að lesa vel og lengi. Það er vika síðan og margt hefur gerst en að fyrstu vill ég minna þá á sem að ekki sendu mömmu minni blóm þann 20. að þið getið bjargað ykkur fyrir horn með því að bjóða henni í mat næstu helgi.

Svo fyrir ykkur sem að munið akkúrat enga afmælisdaga þá á hann Eiríkur afmæli þann 30. Og mæli ég með þcí að þið sendið honum afmæliskveðjur á buason@hotmail.com
þó að þið þekkið hann ekki neit honum finnst bara svo gaman að fá afmæliskveðjur þessari elsku.

Þá að alvarlegri málefnum. Ég er með gríðalegar áhyggjur varðandi hvað Friðrika er orðin góð að rökræða. Hún gerir okkur bara kjaftstopp ansi oft undanfarið. Þetta samtal átti sér stað inní stofu þegar að krakkarnir voru að fara að gera sig tilbúin undir háttinn. Þau voru að leika inní herbergi og sípan kom Friðrika fram í flísbuxum og peysu og sagðist vera tilbúinn í háttinn. Gunnhildur sagði rólega við hana að hún mundi nú bara kafna úr hita ef að hún mundi sofa í þessu. Þá horfði hún með sín stóru bláu augu á mömmu sína og sagði "sko ef að manni er kalt þá á maður að klæða sig er það ekki" Gunnhildur sagði "Jú alveg rétt hjá þér en þú ert ap fara að sofa undir sæng" Friðrika "Já en mér er svo rosalega kalt að ég ætla að vera vel klædd undir sænginni svo að mér verði alls ekki kalt í nótt er það skilið" Þá var það útrætt mál og mín fór uppí rúm í öllu saman en klæddi sig snögglega úr öllu saman.

Annað dæmi.
Það er þannig í DK að húsin hér eru ekki eins vel einangruð og heima því verða krakkarnir að sofa í náttfötum en Friðrika er ekki alltof ánægð með það því að hún er heitfeng. Og henni hefur verið sagt að hún er heitfeng og þess vegna er henni altaf svona heitt. En eitt kvöldið þegar að átti að fara að hátta hana þá sagðist hún ekki vilja fara í náttfötin. Þá sagði ég SAS "jú það eiga allir að fara í náttföt" þá horfði hún með þessum fallegu stóru bláu augum " pabbi en ég er svo heitfeng eins og þú og þú sefur alltaf bara á nærbuxunum má ég það þá ekki líka" Og hvað haldiði fékk hún að sleppa við það að fara í náttföt. Ef að þið haldið já þá eru þið frekar skörp.

En Jakob hann gerir ekki neitt hann hrfir bara á mann með bláu augunum og segir "ég gerði þetta ekki" Og hvað getur maður annað en trúað honum.

En allt gott að frétt af okkur Gunnhildi, Ég er að byrja í þessu prófstressi það er margt sem að þarf að klára fyrir 1.des en svo er loka mat á verkefninu 21.des og stærðfræði og efnafræði 15.des.

Gunnhildur ætlar að taka sér smá frí frá skólanum og ég skil hana vel því hún var sett í áfanga dauðans í KU. Hún átti að vera að þýða af dönsku yfir á ensku og öfugt. Nema hvað að þetta eru 18. aldar ljóð og danirnir em að voru með henni þeim fannst þetta meira að segja erfit. Það segir meira en mörg orð og margar myndir. En hún er nú hálfnuð með kiss tungumálaskólann. Og þegar að hún klárar hann þá er hún kominn með ígildi stúdentsprófs í dönsku. Sem að er ansi gott.

Engin ummæli: