föstudagur, október 20, 2006

Guð sé lof að það er föstudagur

Þær fréttir voru að berast sem að ég reyndar vissi en var búinn að gleyn að Gunnar Bjarki vinur minn og Ástrós eru að koma til dk. Spurning að reyna að hitta þau þó ég þurfi að neyða þau því ég veit að í stuttum stoppum er ekki mikill tími. En ég hitti þau bara á kaffihúsinu/barinum við hliðina á H&M á strikinu. Því að allir íslendingar eiga leið þar framhjá.

Annars er allt bara gott að frétta héðan svolitið mikið að gera hjá okkur báðum en við reynum að fínstilla þetta. Þannig að allir geti vel við unað. Hildur systir að koma 2/11 til dk og guð hvað ég vona að hún muni að taka hákarl og harðfisk handa mér og krökkunum. Hann Jakob er alveg vitlaus í hákarl, já og lýsi. Biður alltaf um meira á morgnana þannig að hann fær eina og hálfa skeið af lýsi. Einnig gæti hann borðað fulla krukku fa hákarli ef að hann kæmist í hana.

Held að það sé komið á hreint að við komum til Íslands næsta sumar. Þannig að þið sem að hafið áhuga á að hitta okkur ekki vera í útlöndum í ágúst. Jæja nú er ég farinn heim það er jú föstudagur og ég er búinn að skila mínu aldeilis hér í skólanum í dag.

Hilsen Siggi

Ætla að senda Jakob í þetta sport

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hæ vildum bara thakka fyrir okkur í dag thótt thad hafi verid í myflugumynd:) verdum bara lengur næst. magga og co.