Jæja en önnur helgi liðin vá hvað þetta líður hratt ég er að verða bara búinn með fyrstu önnina hérna úti. Og mér finnst ég vera nýkominn. Allavega þá var þetta bara alveg fín helgi sem samanstóð af ferð í Ikea, Paradís, Kaffihús sem að ég man ekki hvað heitir, Barinn á elleftu hæð að horfa á Bubba Morthens, Heimsókn til jóa og Rakel, Fields og sunnudagaskólan. Einnig hittum við fullt af skemmtilegu fólki um helgina m.a Gunnar Bjarka , Ástrós, Rúnar Frey, Möggu Stínu, Óla, Karólínu, Maríu , Jóa, Rakel, Nóa, Marínó Runólf, Heiðrúnu, Ástþór Inga , Kristján Daða, Möggu, Svenna, Örnólf. Lissý, Hrannar Inga ,Magga, Tinnu og marga fleiri. Það er bara svo mikið að gera alltaf hérna.
GunnarBjarki og fjölskylda voru hérna um helgina að halda uppá afmæli Rúnars sem að er höfuð fjölskyldunar. Sem sagt pabbi hans Gunnars fyrir þá sem að eru enn að velta fyrir sér hver þessi Rúnar er. Við hittum þau á Sunnudaginn á kaffihúsi á Strikinu og vá hvað hann Rúnar freyr (sem að er sonur Átrósar og Gunnars) orðin stór. Og vá hvað var gaman að hitta þau þó að það hafi verið í svoa mýflugumynd. Þá er alltaf gaman að hitta vini sína sama hve stutt það er.
Einnig hittum Við Möggu Stínu Óla og stelpurnar þeirra á Sunnudaginn. Buðum þeim heim í Paradís sem að sló í gegn hjá öllum aldurshópum. Óli lék á alls oddi mér hefur alltaf fundist hann smá feiminn en aldeilis ekki núna. Við ræddum um allt milli himins og jarðar einnig var Magga hress þrátt fyrir ólettuna. Sem að hún varð fyrir að völdum Óla. Ótrúlegt hvað krakkarnir náðu vel saman þrátt fyrir að hafa aldrei hist. Þó sérstaklega náðu María og Jakop vel saman voru í byssó að skylmast og í mömmó bara allan tímann. Verst að þau búa í Horsens því að það væri gott að hafa þau í köben.
Ályktun.
Þetta var góð helgi með góðum mat skemmtilegu fólki hvað getur maður beðið um meira. Jú maður getur kannski beðið um eitt í viðbót Hamborgarabúllu Tómasar.
MUNA AÐ COMENTA
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Hæ hæ ætla að kvitta.Það er mjög gaman að sja hvað þú ertu duglegur að blogga. Gaman að fylgjast með ykkur
kv Helga;-)
Skrifa ummæli