Hildur systir steig á land hér í DK í gær og urðu miklir fagnaðafundir. Hún ætlar að lóðsa okkur hér varðandi innskráningu í landið sem er víst ekki lítil pappírsvinna. Hagstofan lokaði svo snemma í gær þannig að við tókum bara strikið í góða veðrinu. Ótrúlegt hvað eru margar Hróaskeldueftirlegukindur hérna og allar meira og minna fullar. Mest ber þó á Íslendingunum því þeir tala hæst. Veðrið hér er til fyrirmyndar og ekki hægt að kvarta yfir því, í gær keyptum við hina fullkomnu sílarvörn samkvæmt henni Ingibjörgu háskólanema. Vinir hennar vru í Dubai og brunnu ekkert heldur urðu bara kaffibrún. Og það magnaða við þessa sólarvörn er að maður ber bara á sig einu sinni á dag. Einum og hálfum tíma áður en að maður fer út í sólina, mér hlakkar til að prófa þetta og læt ykkur vita. Þessi vörn heitir P20 ekki flókið að muna.
Í dag verður farið að skrá sig inn í landið og farið á ströndina. Þangað til næst.
E.S
Veit ekki hvað er að verða um HM
miðvikudagur, júlí 05, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
En heppin að fá svona góða sílarvörn ;o). Frábært að heyra hvað þið fáið gott veður og gerit notið þess aðeins. Vildi að ég gæti aðeins komið til ykkar í þetta góða veður, en það verður víst að bíða betri tíma, vonum bara að dagurinn í dag sé byrjunin á góðu framunda hér á Íslandi. Bið að heilsa ykkur öllum krúsídúllurnar mína og og hafið það nú gott á ströndinni og kyssið fallegu börnin ykkar frá Lindu frænku
Skrifa ummæli