laugardagur, júní 10, 2006

Pakka pakka pakka

Nú er verið í óða önn að pakka öllu dótinu sem við ætlum að taka og einnig því sem á að fara í geymslu niðrí kassa. Einnig erum við að selja allt sem við ætlum ekki að taka með eða eiga. Það gengur bara furðuvel kannski svoltið hægt en gengur þó. Bíllinn fór á sölu í dag og vona ég að hann seljist fljótt og örugglega því þetta er góður bíll og lítið ekinn. Ekki nema 25 dagar þangað til að við förum og að hugsa sér ég mun horfa á úrslitaleikinn í HM í DK. Þannig að nú verður Eiríkur að finna einhvern góðan bar. Nema að við förum bara á Solbakken barinn sem er á 11.hæð.
Að hugsa sér það er bar tveimur hæðum fyrir ofan íbúðina mína. Sem er gott en maður mun ekki hafa neinn tíma fyrir drykkju allavega ekki mikla. Því maður er að fara þarna út til að læra,læra og læra. En fyrst þarf maður að læra það að læra skrýtið kunna ekki allir að læra?


Ég mæli með að þið kíkið á bloggsíðuna hans Simma san. Og ef að þið vitið ekki hver Simmi san er þá vinsamlegast bið ég ykkur að fara í hornið í tvær mínútur.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Simmi san hver veit ekki hver hann er.