Fórum í leikhús í gær með fjölskyldunni hennar Gunnhildar í gær og fórum við að sjá Fullkomið brúðkaup. Sem Leikfélag Akureyrar setti upp í vetur og er það nú komið í Borgarleikhúsið.
Það er óhætt að mæla með þessu leikriti ég hef ekki hlegið jafn mikið í leikhúsi síðan að ég sá, ég sá, nei ég hef bara aldrei hlegið svona mikið í leikhúsi. Guðjón Davíð (Gói) er svo góður leikari að ég held bara að Hilmir Snær og Stefán Karl megi fara að vara sig, hann sýnir þvílíka snildartakta á sviðinu og þetta kemur svo nátturulega hjá honum. Að maður gleymir því að maður sé í leikhúsi. Því flestir íslenskir leikarar ofleika en ekki Gói.
Einnig eru fleiri góðir leikarar í sýningunni s.s Álfrún Helga Örnólfsdóttir, Esther Thalia Casey ,Jóhannes Haukur Jóhannesson, Maríanna Clara Luthersdóttir og Þráinn Karlsson.
Sem standa sig öll með prýði og það er þvílík leikgleð i hjá þeim öllum. En þið verðið bara að sjá þessa sýningu og ef að þið farið bara einu sinni í leikhús á ári þá er þetta sýningin.
En dagurinn í dag verður eitthvað rólegur því að Jakob er veikur með ælupest og Friðrika er hjá Ástu Lind frænku sinni. Ekkert að gera nema að bíða eftir júróvision og sjá hvernig mínir menn Finnarnir standa sig. Vona að þeir verði í topp fimm sem þeir verða vitið til. Gunnhildur er að gæsa hana Helenu vinkonu sína. Þannig að við feðgarnir verðum bara heima að glápa á imban og leika okkur í allan dag.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli