mánudagur, apríl 24, 2006

Smá fréttir

Þetta verður bara gaman ég er ekki alveg að leyfa mér að missa mig í spenningi en þegar að við verðum búinn að finna leigjendur þá má missa sig smá.Kannast ekki einhver við að fara í strætó og taka ekki skiptimiða.Þannig líður mér eftir að hafa verslað miða til köben en ekki heimOne way ticket.
Föstudagur
Ég er með smá samviskubit gagnvart því að kannski er ég búinn að skemma svolitið Latabæ fyrir hana Friðriku.Þannig er mál með vexti að ég fór til Bjögga(sem ég vinn hjá) en hann og Stefán karl eru bræður.Og færði Bjöggi mér áritað póstkort af Glanna glæp fyrir börnin. Svo kem ég færandi hendi heim og Friðrika spyr hvað standi á kortinu og ég útskýri þetta fyrir henni. Að Stefán karl leiki Glanna og að hann sé bróðir hans Bjögga og hans nafn er því á kortinu. Hún horfir á mig með smá spurningarsvip en segir svo bara okay. Síðan seinna þetta kvöld horfðum við öll saman á Latabæ og Jakob er svo hrifin að Glanna að ég segji við hann "Hvað er Glanni að gera"Þá öskrar mín upp "Þetta er ekki Glanni glæpur þetta er hann Stefán Karl bróðir hans Bjögga sem þú ert að vinna með manstu það ekki eða hvað".Hvað á maður að segja við þessu ekki átti ég að fara að ljúga að henni varðandi Glanna?
Mánudagur
Nú er klukkan ekki orðin sjö og Friðrika er sofnuð eftir að hafa borðað tvo hamborgara .En Jakobi finnst ekkert gaman að sofa þannig að hann er vakandi og verður það eitthvað áfram sem að er bara í lagi.Var að tala við umboðsmenn mína í Köben og samkvæmt þeim er bara að koma sumar og ekkert annað. En umboðsmenn okkar eru þau Vigdís og Eiríkur Steinn það er þeim að þakka að við skyldum fá íbúð á solbakken því að Vigdís tekur ekki kannski fyrir svar. Þannig að þúsund þakkir Eiríkur,Vigdís,Sóldís og einnig Heiða því að ég frétti að hún hafi aðeins hjálpað til eða hvort að hún var bara á staðnu þá bara takk.

Engin ummæli: